SVEITAVARGURINN.IS
23-01-2010 kl. 19:23

Hér er ekkert að sjá :)

31-01-2009 kl. 20:28
Gleðolegt nýtt ár og takk fyrir það gamla
Okkur langaði bara að kasta á ykkur kveðju.

Hjörtur er alltaf á fullu í vinnunni og líka rosalega vel.

Patti er ferskur en samt ekki í uppáhaldi á eigendunum vegna þess að hann var ósáttur við að það datt út einn dagur í göngferð svo að hann nagaði eimarnar af gönguskónum. Við vitum ekki hvaða tilgangi það þjónaði hjá honum :) Berja þetta lið áfram.

Berta er í vinnunni á fullu og síðan er hún að hreyfa sig þess á milli. Nú er að þýðir ekkert annað. er sátt við að vera búin að losna við 10 kg. Núna þýðir ekkert annað en að halda áfram og missa meira og auka þolið til að geta staðið við skuldbindingarnar sínar. og hana nú.

Við erum sammála um að besta sem við gerðum á síðasta ári var að flytja í borgina. okkur líður rosalega vel. Það er öllum hollt að breyta til og prófa eitthvað nýtt

Þangað til næst......

Berta og Hjörtur

14-09-2008 kl. 18:47
Borgarlífið
Jæja er ekki spurning um að láta vita hvernig við höfum það í borginni.

Hjörtur lifði það af að búa einn í borginni án mín, rétt svo!!!

þegar ég kom suður byrjuðum við á því að fara í rosalega skemmtilega ferð til köben-svíþjóð-Norge-Þýskalands-Köben. Með Arnþóri, Möggu og Emilíu aðalskvísu. Keyrðum um á VW eðalvagni og hittum skemmtilegt fólk og skoðuðum fallega staði.

Þegar heim var komið þýddi ekkert annað en að fara leita sér að vinnu, því ekki lifir maður á loftinu. Ég er farin að vinna hjá Intrum, líkar það rosalega vel. Ég er með þann titil að vera aðstoðarmaður skjalastjóra á framleiðslusviði, virðulegt ekki satt.

Patti er kominn í borgina og er að hugsa um að skila eigendum sínum, finnst þau vera orðin frekar mikil borgarbörn. Hann hittir stundum í göngutúrum litla (tusku)borgarhunda sem eru að reyna að ráðast á hann. Honum finnst það ekki fyndið. En það er hann sem fer ekki út ef að það eru meira en 8m/s úti.

Við komumst ekki í göngur þetta árið vegna anna í vinnunni hjá okkur báðum... Það er svona.

Stebba varðandi Noreg, þá ætlaði ég aldrei að fara þangað aftur, vegna þess að þeir tóku ekki debetkortin okkar. en það breytist um leið og ég vissi að þú værir að flytja þangað.

Ætlaði bara að leyfa ykkur að frétta aðeins af okkur, þar að segja ef að það eru ekki allir hættir að koma hingað inn.. sem ég skil vel :)

Kveðja Berta

30-01-2008 kl. 19:46
2008
Jæja, fyrst að allir eru búnir að taka saman annálana fyrir 2007. Þá er best að ég taki saman annálinn fyrir 2008.

Á árinu verður þetta helst.

Ég ætla að bregða heimdraganum, flytja úr átthögunum. Burt úr vestrinu þar sem allt er fegurst og mest.

Flytja í sollinn þar sem handrukkarar eru á hverju strái. Bílaraðirnar ná borgarendanna á milli og varla sést í esjuna fyrir byggingarkrönum sem hamast við að byggja ný hverfi fyrir utan síðust úthverfin þar á undan.

Þá er svartsýni hluti annálsins búinn og hægt að fara í skemmtiegu málin.

Ég er að fara í nýja vinnu sem ég hlakka mikið til að byrja í.

Við Berta flytjum í fínt húsnæði á rólegum og góðum stað (að maður tali nú ekki um grannana).

Góðu mennirnir hjá Securitas ætla að vera nýju bestu vinir Patta, svo lengi sem hann fer í megrun (niður fyrir 20 kíló takk) og lækkar sig um nokkra sentimetra dags daglega.

Berta mín ætlar að reyna við grasekkjulífið til að byrja með. Sé ekki fyrir mér að hún geti það lengi, þar sem ég er nú eins og allir vita fjallmyndarlegur, skemmtilegur með afdæmum, fótfagur og ekki síst ávallt hógvær.

Búast má við því að matsölubæjarins gleðjist yfir nýjum afkomutölum, því auðvitað væntir strákurinn þess að auka hagvöxt hvar sem hann fer.

Búast má við breytingum á þessu plani og óvæntum uppákomum hvað eftir annað.

Sveitakveðja Hjörtur yfirvargur.

P.s. Var Berta búinn að segja ykkur frá því að hún fékk berta@sveitavargurinn.is eftir aðeins nokkurra ára umsóknarfrest ? Sendiði þessarri elsku nú eitthvað fallegt í pósti til að óska henni til hamingju með það.

25-01-2008 kl. 14:28
Hann er á lífi..... :)


Næsta
Ég
Röflið
Myndir
Gestabók
auglýsingar
Þverfjall 20.01.05
Vigur 21.01.2005
Ernirinn
Hjörtur Arnþórsson - hjortur@sveitavargurinn.is