12-08-2007 kl. 7:22 Hjörtur er eins og fræga fólkið 20-07-2007 kl. 22:39 Erum á lífi Sumarið okkar hefur verð skemmtilegt... Ég er búin að vera í sumarfríi síðan 9 júlí og fer ekki að vinna fyrr en 13 ágúst, það er bara mjög gott.... Erum að fara saman í sumarfrí í næstu viku og þá er stemmt að fara eitthvað og sýna sig og sjá aðra. :)
Stelpan er búin að eiga afmæli og allt.. Erum búin að taka mikið af fallegum myndum sem á bara eftir að koma inn á netið... Læt tæknimanninn um það.
Fór áðan í göngutúr með patta á höfnina og þar hittum við hjón frá s-Bretlandi og þau eru búin að vera hér á landi síðan 2 júni og fara 23 ágúst. Eru bara rúnta um landið á húsbílnum sínum. Þegar þau sáu patta sögðu þau að hann væri fyrsti hundurinn sem þau hafa séð síðan þau komu. voru hissa hvað það væru fáir íslendingar... Ég spyr hvar eru hundar landsins, ég hélt að það væri meira en nóg af þeim :)
Í þessum sama göngutúr hittum við Pétur frænda hann var hress eins og vanalega, en hann Patti minn er búin að ákveða að Pétur sé hræðilegasti maður sem finnst á þessu jarðríki.. Hann skelfur og setur skottið undir sig og þorir ekki að hreya sig. Meiri aulinn þessi hundur sem ég á... Hann baðaði sig líka í skíta kjallaranum í tungi í gær það er gaman að þessu :)
Nú bíður maður bara eftir að Svala systir mín eigi barnið sitt það á að koma á næstu dögum... Spennandi
Hef þetta ekki lengra í bili, því þetta er sennilega lengra en hann hjörtur minn hefur skrifað frá upphafi..
Farin út í sumarið kv. Berta 03-05-2007 kl. 13:45 Oh shit. Talandi um að taka mynd á réttu augnabliki.